Zen

Zen á Íslandi € Nátthagi


Menningu nútímans skortir oft mikilvæga mannlega eiginleika, eins og kyrrð, hlýju, samúð og hamingju.
Með agaðri zen-iðkun getum við hugsanlega eytt streitu, kvíða og vonleysi, sem mörg okkar upplifa í daglegu lífi.

Zen kemur frá Búdda. Á 2600 árum hefur zen borist frá einum kennara til annars, líkt og vatn sem hellt er úr einni skál í aðra.

Frá Japan barst það til Ameríku með S. Suzuki-roshi. Einn af arftökum hans er Jakusho Kwong-roshi, kennari íslenska zen-hópsins.
Kwong stofnaði "Sonoma Mountain Zen Centre" í Norður-Kaliforníu árið 1974. Þar kennir hann zen-iðkun, sem miðast við hversdagslífið.

Hann er giftur og á uppkomna syni. Hann ferðast árlega til Íslands og Póllands til að kenna zen-hugleiðslu.
Roshi segir: Þegar líkami, öndun og hugur eru samvirk kemur manngæskan í ljós. Það skiptir ekki máli hvaða trúarbrögðum þú tilheyrir þegar þú iðkar zen, því að iðkunin er til þess að þú verðir þú sjálfur - "to settle the self on the self."
Þegar það gerist felur hún allt í sér, sem þýðir að þú getur iðkað með Búdda, Bodhidharma og Jesú Kristi.

Zen

Jakusho Kwongroshi

Íslenski zen-hópurinn starfar í beinum tengslum við Sonoma Montain Zen Center, Genjo-JI 6367 Sonoma Mountain Road, Santa Rosa California.

Zen á Íslandi heldur reglubundið námskeið í zen-iðkun og hefur hugleiðsludaga á mánudögum fyrir byrjendur. Aðrir iðkunardagar eru fimmtudagskvöld og laugardagsmorgnar. Einnig eru haldnir sérstakir sesshin dagar yfir vetrarmánuðina.

J. K. Roshi hefur komið reglulega síðastliðin tíu ár til að taka þátt í sesshin með Zen á Íslandi og samhliða haldið kynningu á zen iðkun.

Þeir sem óska eftir nánari upplýsingum um Zen á Íslandi og hafa áhuga á að kynna sér zen-iðkun geta haft samband við Helgu í síma 581 1851, Óskar í síma 562 1295 og Símon í síma 566 7634.

Í zazen stellingunni hafa hugur og líkami þrótt til að taka á hlutunum eins og þeir eru, geðfelldum sem ógeðfelldum.
S. Suzuki-roshi