Símon H. Ívarsson hóf gítarnám við Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar hjá Gunnari H. Jónssyni. Vorið 1975 lauk hann fullnaðarprófi frá skólanum en þá um haustið hóf hann nám við Hochschule für Musik und darstellende Kunst í Vínarborg hjá prof. Karl Scheit. Þaðan lauk hann einleikaraprófi vorið 1980. Símon starfaði síðan sem gítarkennari við Tónlistarskólann í Luzern í Sviss, en hefur síðastliðin 13 ár kennt á gítar við Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar.
Hann kennir auk þess kennslufræði og kammertónlist við sama skóla. Símon hefur sótt námskeið, m. a. til Spánar, Ítalíu, Sviss og Austurríkis, þar sem kennarar hans hafa m. a. verið J. Tomas, M. Gangi, A. Batista, M, Barrueco, T, Korhonen,
O. Ghighlia og D. Russel.
Hann hefur einnig sérhæft sig í Flamencotónlist og farið sérstakar námsferðir til Spánar í þeim tilgangi.
Símon hefur farið í margar tónleikaferðir bæði hér heima og erlendis.
Hann fór meðal annars í nokkrar tónleikaferðir ásamt austurríska gítarleikaranum Siegfried Kobilza, og síðar með sænska gítarleikaranum Torvald Nilsson.
Einnig starfaði hann nokkur ár með austurríska orgelleikaranum Orthulf Prunner en þeir gáfu út plötu með samleik gítars og orgels og síðar geisladisk með gítar og klavikord. 
Símon og Orthulf Prunner
Einnig gáfu þeir út vídíóspólu með leik sínum. Undanfarin ár herfur Símon starfað með fiðluleikarnum Hlíf Sigurjónsdóttur auk þess að spila einleikstónleika. Símon hefur komið margsinnis fram í útvarpi og sjónvarpi og hefur stjórnað útvarpsþáttum um gítar og gítartónlist, og hlotið námsstyrk frá ítalska ríkinu.
Hann var kosinn til formennsku fyrir hagsmunsamtök tónlistarmanna "Tónlistarbandalag Íslands" 1990 sem stóð m. a. fyrir "Ári söngsins" og gefið var út í tengslum við það söngbækurnar "Hvað er svo glatt" og geisladiskurinn "Góðra vina fundur".
Símon tekur að sér að spila í einkasamkvæmum, afmælum giftingarveislum o.s.frv. og kennir einnig á gítar. Ef þú hefur áhuga getur þú haft samband við hann í síma 566 7634