Fegursta kirkjan á
Íslandi

Bjarnarhafnarkirkja

Leikmaður sagði mér:
"Fagurt þótti hollensku sjómönnunum vestra
er þeir náðu þar landi, sennilega á 17. öld.
Kirkjan í Bjarnarhöfn þáði góða töflu."

Er hún eftir Rembrandt,
einn af málurum málaranna?
Ef það sannaðist
þyrfti því miður lögregluvörð um kirkjuna,
já, allan sólarhringinn,
því að of margir hafa gleymt sjöunda boðorðinu.

En sérfræðingur sagði mér:
"Þessi tafla er ekki úr pensli Rembrandts,
jafnvel ekki frá hinu blauta Hollandi,
ef til vill eftir 19. aldar Dana."

Saga leikmannsins ánægjulegri?
Saga sérfræðingsins áreiðanlegri?
Verk meistara -
það skiptir máli -
nafnlauss meistara eins og Íslendingasögurnar.
Eða má grafa svariš við leyndarmálinu
upp úr bakhlið töflunnar?

Augu Krists í Emmaus
fylgja þér eftir um alla kirkjuna.
Rifjaðu hér upp
það sem hann sagði við fiskimanninn forðum:
"Héðan í frá skalt þú menn veiða."

Taflan góða hefur margan veitt
á tímans fiskislóð.


til baka ...: :... ·fram