 |
Fegursta kirkjan á Íslandi
Víðimýrarkirkja
Víðimýri,
jörð Ásbirninganna
Kolbeins Tumasonar,
sem hét á himna smiðinn
sinn hinsta dag,
og Kolbeins unga,
sigurvegarans í Örlygsstaðabardaga
og Flóabardaga.
Skrautlegir hefðarbekkir gömlu torfkirkjunnar,
arfur síns tíma,
leiða hugann að Hinu almenna bréfi Jakobs
um ríka manninn
og fátæka manninn
í samkundunni.
Þar var dómsorðið:
Manngreinarálit er synd.
|