|
Fegursta kirkjan á Íslandi
Mosfellskirkja í Mosfellsdal
Innansveitarkronika geymd -
týnda klukkan,
fundna klukkan
sem hringt er við helgar tíðir,
saga Laxness af konunni
sem trúa mátti fyrir brauði kirkjunnar,
"brauðinu dýra."
Egils saga ekki gleymd -
saga víkingsins
sem féll tvívegis
fyrir Elli kerlingu.
Glíma þeirra
fær þig til að muna eftir spakmæli Prédikarans:
"Að fæðast hefir sinn tíma
og að deyja hefir sinn tíma."
Fjársjóður kappans enn ófundinn.
Hví að leita silfurs
ef finna má gull
í kenningu Krists á þessum stað,
þessum sögustað?
|