Fegursta kirkjan á
Íslandi

Bænhúsið á Núpsstað

Eða er það bænhúsið á Núpsstað?
Lamb á beit á þekjunni
og í baksýn jötunninn hans Jóns
"með járnstaf í hendi
jafnan við Lómagnúp."

Samskotaféð á altarinu,
kærleiksfórn hins víðförla,
minnir á andstæðu sína,
silfurpeninga lærisveinsins
sem sveik meistara sinn með kossi.

Við höfum ekki krossfest Krist
en bregðumst við ekki fulloft
kærleiksskyldum okkar
og gleymum jafnvel því
sem Júdas mundi eftir:
að iðrast?


til baka ...: :... áfram