 |
Fegursta kirkjan á Íslandi
Hóladómkirkja
Turn Hóladómkirkju,
prýði Norðurlands.
Klukkur uppi,
og það sem sumum sést yfir,
klukkur niðri:
Flísamynd Errós.
Kirkjan mörgum kunn,
sagan flestum kunn.
Andi Jóns biskups Arasonar svífur yfir vötnunum.
Betur að þeir
sem gerðu hann höfðinu styttri
hefðu minnst orða Fyrri Samúelsbókar
um veglyndi Davíðs við Sál í hellinum,
Davíðs sem lét sé nægja
að sníða lafið af skikkju Sáls.
|