 |
Fegursta kirkjan á Íslandi
Hellnakirkja
"Í Hellnakirkju er rammi,"
yrkir Jóhann skáld Hjálmarsson -
utan um þann sem mælti:
"Ég er ljós heimsins."
Aðeins þessi rammi fær þig til að spyrja:
"Hver er fegursta kirkjan á Íslandi?"
Næst því að sjá handaverk mannsins,
sem varð úti,
er að lesa ljóð skáldsins.
Ekki verður það bætt
en - ef einhverju yrði við það bætt -
mætti segja:
"Láttu ekki Jesú verða úti
á leið sinni til þín."
|