 |
Fegursta kirkjan á
Íslandi
Hallgrímskirkja
Fegursta kirkjan á Íslandi?
Er það Hallgrímskirkja á vígsludegi
sem faðmar sín sautján hundruð
á helgistund,
gleðistund?
Bjart og háreist guðshús -
verk Guðjóns húsameistara,
Sigurðar verkamanns,
Hermanns formanns og
annarra góðra manna,
karla sem kvenna -
byggt á bjargi eins og Skólavarðan,
í minningu skálds
er í dimmum og lágum torfbæ
hóf að yrkja Passíusálmana:
"Upp, upp mín sál og allt mitt geð."
Hefði Steinn Steinarr verið
meðal okkar
þessa stund
hefði hann aldrei
látið Hallgrím mæla:
"Húsameistari ríkisins!
Ekki meir, ekki meir!"
|