Betlehemstjarnan Fegursta kirkjan á Íslandi

Ljóðabók
Myndabók
Fræðibók



Þessi bók er í rauninni engri annari lík. Sérstaða hennar felst í því að hún er allt í senn ljóðabók, myndabók og fræðibók sem hver um sig beinir kastljósi að allt öðrum áhersluatriðum en venjulegar bækur, því sem fólki sést oft yfir í dagsins önn.

Bókin væri metsölubók ef hún væri eingöngu flokkuð sem ljóðabók en hún geymir fjörutíu ljóð í einum ljóðabálki um nokkrar fegurstu kirkjur Íslands.

Stór litljósmynd með hverju ljóði eftir höfundinn, sem er þekktur áhugaljósmyndari og hefur myndað nær allar kirkjur landsins, gerir bókina jafnframt að veislu fyrir augað - myndabók

Og loks er bókin líka fræðibók. Þar eru m.a. skýringar sem geyma margháttaðan þjóðlegan fróðleik. Þar eru tilvitnanir í trúarheimildir sem tengjast efni bókarinnar og auka á notagildi hennar þegar fólk hefur fengið nóg af lestri hefðbundinna bóka. Þar er ítarleg orðaskrá sem áhugavert getur verið að fletta og lesa sér síðan til um hetjurnar á Látrabjargi og annað gott fólk sem tengist kirkjunum okkar.

Bókin á erindi við fólk á öllum aldri - og á öllum tímum því að hún verður ekki aðeins lesin og skoðuð um ein jól og síðan lokað að eilífu. Hún á einnig erindi við útlendinga hér á landi og erlendis sem geta notið litmyndanna og greinargóðs útdráttar á ensku

Og þá er það spurningin: Kemst þessi sérstæða bók í bókasafn þitt og vina þinna?


__ __ __

Ótrúlega glæsileg.

Sverrir Kristinsson bókaútgefandi

Skemmst er frá að segja að ekkert virðist til sparað að bók þessi
mætti verða sem íburðarmest og glæsilegust... Þetta er í fáum orðum
sagt mikil bók og vönduð og hæfir prýðilega því háleita efni sem hún fjallar um.

Erlendur Jónsson bókmenntagagnrýnandi, Morgunblaðinu

Það hlýtur að vera mikið fagnaðarefni hverjum áhugamanni um framgang
íslenskrar kristni að leikmaður skuli setja saman slíka bók og koma
henni fyrir almenningssjónir.

Gunnlaugur A. Jónsson guðfræðiprófessor, DV

Ég átti von á miklu og varð ekki fyrir vonbrigðum. Ég finn svo vel að
Guð hefir verið í verki með þér, Jón Ögmundur, í gegnum alla
bókina frá byrjun til enda, og vona ég að margir muni blessun hljóta
við lestur hennar, og er það vel, því ef Guð byggir ekki húsið
erfiða smiðirnir til ónýtis.

Unnur Guðmundsdóttir, Stað í Reykhólasveit

Það er hreint ævintýri að fletta þessari bók, -mörg ævintýri.

Kjell Krey Dagsloth, ritstjóri norsks félagsrits

Þessi ljóð eiga erindi við íslenzka lesendur. Þau eru stuðningur við Krist og kirkju hans.

Gersemi.

Séra Heimir Steinsson

Myndir og ljóð úr bókinni
Um höfundinn
Pöntunarseðill