| Um höfund bókarinnar Fegursta kirkjan á Íslandi
Höfundur línu og litar, Jón Ögmundur Þormóðsson, er fæddur í Reykjavík 1. mars 1943, sonur Láru Jónsdóttur (f. 1913) og Þormóðar Ögmundssonar, lögfræðings og aðstoðarbankastjóra (1910-1985). Kona hans er Lilja (Júlía) Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðingur (f. 1948) og sonur þeirra Þormóður Árni (f. 1983).
Jón Ögmundur lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1963, lögfræðiprófi frá Háskóla Íslands 1971 og meistaraprófi í lögum, með áherslu á þjóðarétt, frá Harvardháskóla í Bandaríkjunum 1972.
Jón starfaði í utanríkisþjónustunni á árunum 1972-1979. Var hann sendiráðsritari í París, og jafnframt varafastafulltrúi Íslands hjá Efnahags- og framfarastofnuninni (OECD) og Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO), á árunum 1974-1977 en sendiráðsritari í Moskvu 1977-1979. Þá hefur hann á ýmsum tímum starfað í viðskiptaráðuneytinu, þar af samfleytt frá 1983, en skrifstofustjóri ráðuneytisins hefur hann verið frá 1988. Nefna má að í viðræðum um Evrópska efnahagssvæðið sat hann m.a. í almennri textanefnd fyrir Íslands hönd. Hann hafði umsjón með þýðingu á meginmáli EES-samningsins fyrir utanríkisráðuneytið en áður hafði hann þýtt hafréttarsamninginn fyrir ráðuneytið.
Af félagsstörfum má nefna að höfundur var formaður Stúdentafélags Háskóla Íslands 1967-1968. Þá keppti hann í landsliði Íslands í frjálsum íþróttum 1964, nánar tiltekið í sleggjukasti. |
Jón Ögmundur hefur m.a. samið ritið Drög að íslenskri hraðritun - hraðritunartákn algengustu orða tungunnar (1966), ritstýrt bókinni Heimurinn þinn (1971), birt endurskoðaða meistaraprófsritgerð um nokkur lagaleg atriði varðandi verndun fiskstofna í Norðaustur-Atlantshafi í Úlfljóti, tímariti laganema (1973), og skrifað grein um Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna í Úlfljót (1977). Sem áhugaljósmyndari hefur Jón sérhæft sig í að mynda íslenskar kirkjur. Ljósmyndir hans hafa m.a. birst í bókaflokkunum Landinu þínu Íslandi, Reykjavík, sögustað við Sund, Íslandshandbókinni, Íslensku alfræðiorðabókinni og Photography Yearbook í Bretlandi. Tildrög þess að kirkjumyndir urðu kirkjuljóð voru þau að Dag Hammarskjöld (1905-1961), framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna frá 1953 til dauðadags, skrifaði á sínum tíma eftirfarandi orð: "Þú hefur ekki gert nóg, þú hefur aldrei gert nóg, eigir þú enn eitthvað sérstakt ógert." Aðallega varð ljóðið til 1987 en annað efni á næstu sjö árum enda kom margt í ljós þegar kastljósinu var beint að einstökum kirkjum. Ísland er fleira en augað sér. Fegursta kirkjan á Íslandi er fyrsta ljóðabók höfundar. |