Forsíðukeppnin 1996

1. sæti
2. sæti
3. sæti
4. sæti
5. sæti
6. sæti
7. sæti
8. sæti
9. sæti
10. sæti

Forsíðukeppni tímaritsins Hár og fegurð er haldin síðla sumar ár hvert. Keppnin er opin hársnyrtifólki, snyrtifræðingum, förðunarfræðingum, ljósmyndurum, tískuhönnuðum og fatagerðarfólki. Keppendur skila inn myndum sem eru dæmdar af þriggja manna dómnefnd. Raðað er niður í tíu efstu sætin. Allar myndirnar sem berast í keppnina eru birtar í tímaritinu undir nafni þátttakanda og vinningsmyndin er að sjálfsögðu birt á forsíðu.

Ingibjörg Reynisdóttir förðunarfræðingur varð vinningshafi keppninnar 1996. Selma Pétursdóttir á hárgreiðslustofunni Prímadonnu sá um hárgreiðsluna og Kristján Maack tók myndina. Ingibjörg farðaði með No Name snyrtivörum.


Forsíðukeppnin 1997 er hafin og er seinasti skiladagur í hana
20. september 1997.
Þáttakendur eru beðnir um að skila inn einni slides mynd og einni litmynd í stærðinni A4.
Einnig má skila inn s/h og er myndin þá dæmd þannig.
Einstaklingar innan hverrar greinar geta keppt sjálfstætt eða í samvinnu við hinar greinarnar.


Smelltu hér til að sjá myndir frá Forsíðukeppninni 1995.