
Efst á dagskrá í klúbbnum eru leikhúsferðir, út að borða, stuttir göngutúrar í nágrenni Reykjavíkur, lengri göngutúrar á fjöll og náttúra Íslands skoðuð. Dagskrá klúbbsins er gefin út á tveggja til þriggja mánaða fresti. Hin ýmsu fyrirtæki styðja við klúbbinn og veita klúbbfélugum margskonar fyrirgreiðslu.Myndir úr klúbbnum
Eðalklúbburinn er ævintýraklúbbur fyrir jákvæða einstaklinga sem hafa áhuga á mannlegum samskiptum og að efla einstaklinginn.
Eðalklúbburinn er klúbbur sem ekki er hægt að krefjast neins af heldur verður hver og einn að gefa eitthvað frá sér til að fá eitthvað út úr klúbbnum.
Það er ekki dauðinn sem þú þarft að hræðast heldur að hafa ekki lifað lífinu. Þú átt ekki að lifa í fortíðinni heldur að læra af henni - þú átt að lifa í nútíðinni, því að núið er það sem þú varst að hugsa um framtíðina í gær.
Stuttar og langar jeppaferðir inn á hálendið og uppá jökla.
Ferðir til heimsborganna, ævintýraferðir út í heim og sólarlandaferðir.
Vínkynningar, bíóferðir, bjórkvöld, skokk, sund, gufa, sumarbústaðaferðir, partý (takmarkaður fjöldi), samkvæmi (ótakmarkaður fjöldi), keila, dans, veiðiferðir, jóga, dulspeki, íhugun, líkamsrækt.
Þetta er bara brot af því sem er að gerast innan klúbbsins.
Ef þú hefur áhuga á að vera með þarftu að fá meðmælanda innan klúbbsins eða þrjá fyrir utan hann.
Fyrirtæki sem hafa áhuga á að kynna ævintýraferðir, bjóða klúbbfélögum tilboð eða kynna þeim vöru vinsamlegast hafi samband við klúbbinn
eđa Tímaritsins Hár og fegurđ, Skúlagötu 54, sími 562 8141.